Færslur: 2024 Janúar

02.01.2024 09:27

Réttir og nú eru það Skarðsrétt og Ósrétt 2023.

 

Eins og oftast þá var Skarðsrétt við Svignaskarði haldin í bliðskaparveðri.

Þá er engin ástæða til annars en að brosa og njóta lífsins eins og við Þura gerðum svo sannarlega.

 

 

Það sama mátti segja um þessi tvö hress og kát að vanda.

Kannski verið að ræða reiðkennslu nú eða bara hestakaup.

 

 

Hér var ekki töluð vitleysa og lopapeysurnar maður minn, gerast ekki flottari.

 

 

Þessir eðalfeðgar frá Beigalda voru kátir og klárir í allt.

 

 

Þessi nutu lífsins og voru sannarlega sólarmegin.

 

 

Þessi stundaði sólbað og naut lífsins.

 

 

Spekingar spjalla Jóhannes, Þorsteinn og Skúli ræddu málin.

 

 

Þessi eðal hjón voru mætt í réttirnar að vanda.

 

 

Það hefur verið árlegt að hitta þessar flottu mæðgur í réttunum.

 

 

Og fleiri mæðgur voru mættar þessar eru bændur í Laxholti.

 

 

Kátir Mýramenn pössuðu dilk númer 26.

 

 

Þessi mynd er hinsvegar tekin í Ósrétt og þarna er snillingurinn hann Jói föðurbróðir minn að líta yfir safnið.

 

 

Hér eru menn að gera sig klára, klæða sig og fleira, já og Ásbjörn er að taka tímann á Sigurði frænda sínum við það.

 

 

Heimferðin undirbúin hjá þessum......

 

 

Haukatungufeðgar í góðum félagsskap húsfreyjunnar á Emmubergi.

 

 

Jói frændi og Sigurður á Narfeyri kátir að vanda.

 

 

Málin rædd og krufin.

 

 

  • 1