09.12.2009 23:48

Mannlíf á ungfolasýningu.



Ég smelli hér inn nokkrum myndum frá ungfolasýningunni í Söðulsholti,  þarna eru heiðurshjón úr Borgarnesi að vellta vöngum yfir kynbótagripum framtíðarinnar.



Þarna er Magnús bóndi á Álftá sem kom sunnan af Mýrum að líta á gripina, þarna með sínu fólki.



Snæfellsnessbændur voru líka mættir í Söðulsholt sumir á leið heim úr skólanum.

Annars er það helst að frétta að Mummi kom galvaskur heim úr skólanum í dag , þá er hann kominn í jólafrí. Þannig að nú styttist í að við rekum saman hrossin setjum ormalyfi í hópinn og veljum úr hvað kemur inn fyrir jól. Bara spennandi og kannske verð ég dugleg að taka myndavélina með hver veit?