23.06.2016 23:15

Sláttur hafinn hér í Hlíðinni.

Sláttur hófst hér í Hlíðinni þann 22 júní.

Mummi rauk af stað í miklum ham eftir sigur okkar manna á EM í fótbolta.

Hólbrekkan og Hvammurinn urðu fyrir valinu en þessi tún voru alltaf talnin með tiltektinni í kringum gamla bæinn.

Dásamleg er lyktin af ný slegnu grasi og  virkar eins og skotheld staðfesting á því að nú er sumarið komið.

 

Grænt og ilmandi.............við rifjum en sumir snúa eða jafnvel tætla.

 

 

Hér er lagt af stað í fystu rúlluna en ef að allt gengur að óskum verða þær vonandi vel á annað þúsundið.

 

 

Mummi og Jacob að taka hrollinn úr rúlluvélinni og koma öllu á skrið í heyskapnum.

 

 

Og þessi lét ekki sitt eftir liggja því þegar hann hafði rakað í múga var Hólbrekkan rökuð betur.

Já hún Fríða frænka mín í Hafnarfirði hefur oft tekið þessa sveiflu í kringum gamala bæinn.

Hún væri eflaust ánægð með að sjá til stráksa þarna.