15.10.2017 22:07

Nú er kátt í Hlíðinni.

 

Sunnudagurinn 15 október rann upp rétt eins og allir aðrir dagar en hér í Hlíðinni var spenna í loftinu.

Þetta var dagurinn sem reiðhöllin yrði reist og því mikið undir að allt gengi upp.

Smiðirnir höfðu sofnað með millimetra á raddböndunum en vöknuðu upp með andfælum eftir draumfarir sem skiptu tugum sentimetra.

Já það var spennandi að sjá hvort að húsið yfir höfuð mundi passa á grunninn.

Ekki mátti á milli sjá hver var spenntastur, húsasmíðameistarinn ( Skúli) , húsasmiðurinn ( Mummi)  nú eða húsasmiðurinn á fyrsta ári (ég).

Við höfðum frábært aðstoðarfólk með okkur sem m.a sá um hífingar, lyftingar, handlang, skítmokstur, eldamennsku já og margt fleira.

Árni Jón mætti með kranabílinn en við hans fyrirtæki Þorgeir ehf höfum við verslað steypuna í grunninn.

Frábær þjónusta svo ekki sé meira sagt.

Gestur á Kaldárbakka kom með skotbómulyftarann sem var heldur betur þarfa þing í þessu fjöri.

Eins og meðfylgjandi myndir sýna tókst dagsverkið með miklum ágætum og tók í raun miklu styttri tíma en við þorðum að vona.

Fyrsta sperra fór í loftið klukkan hálf ellefu (mjög viðeigandi í hálfellefuhreppnum) og sú síðasta var komin á sinn stað rúmlega hálf fjögur.

Neðst á sperrunum eru plattar með götum sem þurfa nauðsynlega að passa við boltana sem steyptir voru fastir á grunninn.

Þarna erum við að tala um millimetramál. En eins og villtustu draumar gerðu ráð fyrir þá smell passaði hver einasta sperra við boltana góðu.

Já þeir eru bara asssskoti góðir á tommustoknum drengirnir, sennilega sofa þeir vært í nótt.

Myndirnar sem koma hér á eftir eru ekki í tímaröð enda var tíminn naumur sem ætlaður var í að koma þeim hingað inn.

 

 

 

Allar sperrur komnar á sinn stað og húsfreyjan að finna tilfinninguna við að vera ,,inní,, húsinu.

 

 

 

Þetta eru fyrstu súlurnar sem fóru upp í morgun, hálf einmanna þarna en nokkurskonar öndvegissúlur.

 

 

Síðustu dagar hafa farið í að skrúfa bitana saman og gera þá klára fyrir hífingu.

 

 

Allt að gerast...............

 

 

Beðið eftir krananum, Gestur og Maron taka stöðuna.

 

 

Svona var blíðan í dag alveg hrein dásemd sérpöntuð fyrir atið.

 

 

Spáð og spekulegrað.

 

 

Þá er fjörið byrjað, fyrsti á loft.

 

 

Ég veit ekki hvort að Gestur var í samræðum við almættið eða hvað ???

En brosandi var hann.

 

 

Það var sama sagan hjá þessum köppum.............til himins var horft.

 

 

Brá og Kristine fylgdust með af einskærum áhuga.

 

 

Þar sem allt er að gerast mæta frambjóðendur, þessi tvö komu og litu á verkið.

Alltaf gaman að fá frambjóðendur í heimsókn alveg sama í hvaða flokki þeir eru.

Takk fyrir komuna.

 

 

 

Þarna sjáið þið notagildið á lyftarnum.............. Mummi alveg í skýjunum.

 

 

Það er alltaf ánægjulegt þegar dropinn í hallamálinu hunskast á réttan stað.

 

 

Og þarna er tekið á því....................

 

 

Frábært dagsverk og gaman að sjá hvernig þetta kemur út þegar útlínur eru klárar.

 

 

Og fyrir þá sem til þekkja, svona er afstaðan varðandi annan húsakost á bænum.

En auðvita er eftir að slá upp fyrir tengibyggingunni sem kemur frá hesthúsinu og í reiðhöllina.

Nánar um það síðar.