09.11.2010 22:57

Smá..........



Nú er að verða síðasta tækifæri hjá kindunum þetta árið að njóta veður blíðunnar útá túni.
Dágóður skammtur er tekinn inná hverjum degi og klipptur en tíminn fer líka í margs konar stúss.
Í gær heimtum við tvílembu sem að Flosi bóndi á Emmubergi fann, alltaf ánægjulegt þegar fækkar á listanum. En ég bíð enn og vona að Sindri minn komi í leitirnar.

Hér kemur ein mynd úr gamla safninu sem ég er svo upptekin af um þessar mundir.



Já það leynist ýmislegt í safninu, þarna er mynd af Hótel Víkingi sem sigldi á vatninu 1964 og 1965.